Áskriftarleiðir

Hafðu samband
Útlit á kynningarefni

Auglýsingar og kynningarefni eru hluti af mikilvægum verkefnum innan fyrirtækja sem hafa það hlutverk að auka vegsemd fyrirtækisins og tekjur, því til þess að þú getir selt þína vöru og þjónustu þurfa aðrir að vita af henni.

Auglýsingaherferðir eru til að mynda eins fjölbreyttar og þær eru margar og því mikilvægt að skilaboðin sé skýr og komi fram á réttum tíma á réttum stöðum. Mikilvægt er að þær herferðir, hversu stórar sem þær eru, séu markvissar og faglega unnar þannig að ímynd þín styrkist á sama tíma og áhersla er lögð á sölu vörunnar.

Kynningarefni hefur það hlutverk að segja lesandanum og þínum væntanlega viðskiptavini sem mest um fyrirtækið og vörur eða þjónustu þess með skýrum og aðgengilegum hætti. Kynningarefni er til að mynda mikilvægt verkfæri sem skapar ímynd fyrirtækisins og fyrir hvað það stendur. Sem dæmi um kynningarefni má nefna: merki, nafnspjöld, bréfsefni, umslög, möppur, bókakápur, bæklingar, póstkort, plaköt, dreifibréf og umbúðir.

Árni Reynir Alfredsson er grafískur hönnnuður hjá Samráði sem og verkefnastjóri og getur hann unnið eftir óskum og þörfum þíns fyrirtækis. Jafnframt vinnum við með þeirri auglýsingastofu eða grafískum hönnuði sem þú kýst að nota - allt gert til að ná tilætluðum árangri og settu markmiði því þinn hagur er okkar hagur.

 

Samráð markaðsmál og hönnun ehf
Laugarvegi 182 - í samstarfi við AP almannatengsl og Port hönnun| 105 Reykjavík
Krókeyrarnöf 10 | 600 Akureyri | Sími 461-2400
samrad@samrad.is