| Markaðsáætlun og greining |
|
Er fyrirtækið þitt með áætlun og skýr markmið í markaðsmálum? Til að ná árangri í markaðsmálum þarf að setja sér skýr markmið og greina markaðinn, svo sem samkeppnisaðila og markhópa, ásamt áætlun um hvernig markmiðum skal náð. Markaðsgreining er til að mynda gerð fyrir nýja tegund af vöru eða þjónustu sem ætlunin er að koma á markað eða til að kanna áhrif og árangur vörumerkja, vöru og þjónustu. Innifalið í markaðsgreiningu er t.d. greining á samkeppnisaðilum og stöðu vörunnar á markaði. Markaðsáætlun er síðan gerð fyrir annað hvort ákveðið tímabil eða ár í senn þar sem markaðslegar aðgerðir fyrirtækisins eða vörunnar eru kortlagðar fram í tímann. Samráð býður upp á gerð markaðsgreiningar og markaðsáætlana fyrir fyrirtæki og frumkvöðla eða aðstoða fyrirtæki við gerð hluta efnisins. Samráð vinnur þessa vinnu í samvinnu við viðskiptavini sína og getur aðkoma Samráðs verið mikil eða lítil, allt eftir þörfum og óskum hvers og eins.
Samráð býður einnig viðskiptavinum sínum upp á gerð rýnihóparannsóknar og reglulegar hulduheimsóknir sem leið til þess að meta hvaða áhrif vara eða þjónusta er að hafa á viðskiptavini og markhópa. Slíkar greiningar eru oft undanfari markaðsáætlunargerðar eða viðbót við slíka vinnu. ● Rýnihóparannsóknir miðast við að ná betri og dýpri þekkingu á markhópnum, viðskiptavinum og/eða tilvonandi viðskiptavinum. Opnar umræður um ákveðið málefni skapa andrúmsloftið og eru tækifæri fyrir fyrirtæki að nálgast gríðarlegt magn af upplýsingum á skömmum tíma. ● Hulduheimsóknir miðast við að kanna til að mynda framsetningu vöru og þjónustugæði innan fyrirtækja. Fyrirfram eru settir fram ákveðnir þættir sem meta skal og fer síðan aðili frá Samráði reglulega, samkvæmt samkomulagi við fyrirtæki eða frumkvöðla, á tilgreindan stað sem viðskiptavinur eða væntanlegur viðskiptavinur og metur hvern þátt fyrir sig. Niðurstöðum er síðan skilað til fyrirtækisins eða frumkvöðulsins í formi skýrslu. Fyrirtækið eða frumkvöðullinn getur síðan nýtt sér niðurstöðurnar bæði til þess að hrósa fyrir það sem vel er gert og einnig sem tækifæri til úrbóta fyrir það sem betur þarf að fara. Hafðu samband og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig! |
Samráð markaðsmál og hönnun ehf
Laugarvegi 182 - í samstarfi við AP almannatengsl og Port hönnun| 105 Reykjavík
Krókeyrarnöf 10 | 600 Akureyri | Sími 461-2400
samrad@samrad.is


