Áskriftarleiðir

Hafðu samband
Birtingar- og kynningaráætlanir

Birtingaráætlun er áætlun um hvar og hvenær fyrirtæki birtir sínar auglýsingar eða kynningar.  Birtingaráætlun tekur mið af boðskapnum og markhópnum sem og kostnaði á því tímabili sem markaðsaðgerðin nær yfir. Þær samskiptaleiðir sem eru tilgreindar eru til að mynda fjölmiðlar, svo sem dagblöð, sjónvarp, útvarp og tímarit. Bein samskipti eins og viðtöl, dreifibréf, markpóstur og fréttabréf. Ásamt samskiptum á veraldarvefnum gegnum heimasíður, facebook, twitter, blogg og fleiri síður.

Samráð setur upp birtingaráætlanir fyrir fyrirtæki og frumkvöðla þar sem fram koma þau tímabil sem auglýsingar eiga að birtast, miðlar sem þær birtast í, fjöldi birtinga og verð.

Kynningaráætlun markar skilaboð, sýnileika og staðsetningu á markaði á hverjum tíma sem áætlað er að keyra markaðsherferð. Slík áætlun er oft undanfari birtingaráætlunnar og ekki síður mikilvæg til að markið og hámarksárangur náist. Kynningaráætlanir eru mismunandi eftir gerð og markhópi fyrirtækja og eru þær unnar í nánu samstarfi við viðskiptavininn hverju sinni.

 

Samráð markaðsmál og hönnun ehf
Laugarvegi 182 - í samstarfi við AP almannatengsl og Port hönnun| 105 Reykjavík
Krókeyrarnöf 10 | 600 Akureyri | Sími 461-2400
samrad@samrad.is