| Almannatengsl |
|
Öll fyrirtæki þurfa að eiga samskipti við viðskiptavini, markhópa, fjölmiðla, starfsmenn, fjárfesta og aðra hagsmunahópa sem tengjast fyrirtækinu og rekstri þess. Mikilvægt er að samhæfa markaðssamskipti fyrirtækja og huga að því að staðfæra skilaboðin til hvers og eins hóps svo upplýsingar komist rétt til skila. Það að nýta mátt fjölmiðla í almannatengslum er mikilvægt tækifæri fyrir fyrirtæki og frumkvöðla til að koma skilaboðum á framfæri og vekja athygli á vörum eða þjónustu. Sannað er að umfjallanir og sýnileiki fyrirtækja og frumkvöðla í hinum ýmsu miðlum er mjög áhrifarík leið til þess að ná til markhópsins og koma þar með vörum eða þjónustu þess á framfæri. Eitt helsta markmið almannatengsla er að tryggja fyrirtækjum og frumkvöðlum umfjöllun í fjölmiðlum til að auka sýnileika, ímynd og trúverðugleika án mikils kostnaðar.
Mikilvægt tæki almannatengsla er að halda sambandi við fjölmiðla, boða þá á fundi, viðburði eða einfaldlega fá viðtal og umfjöllun um fyrirtækið í formi fréttar. Einnig er hægt að senda út fréttatilkynningar þegar fjölmiðlar eru fjarverandi til að vekja athygli á áhugaverðu málefni sem fyrirtækið stendur að. Samráð býður fyrirtækjum upp á aðstoð við gerð fréttatilkynninga og útsendingu þeirra á viðeigandi miðla og er það því bæði auðvelt og hentugt fyrir fyrirtæki að nálgast og notfæra sér þessa þjónustu.
Oft gefast tilefni og tækifæri til að hafa enn meiri áhrif á skynjun viðskiptavina á fyrirtækinu, vörunni eða þjónustunni. Samráð aðstoðar fyrirtæki við skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni við stóra jafnt sem smáa viðburði og leggur metnað sinn í að vel takist upp með sem minnstum tilkostnaði. Sem dæmi um viðburði eru fjölskylduhátíðir og skemmtanir, tónleikar, kynningarherferðir og aðkoma fyrirtækja að styrktarfélögum.
- Markpóstar til markhóps eða núverandi viðskiptavina - Skilaboð til starfsmanna og fjárfesta - Skilaboð til samfélagsins - Skilaboð til annarra hagsmunaaðila - Krísustjórnun Samráð aðstoðar fyrirtæki við undirbúning og framsetningu á samskiptum við ofangreinda aðila og er fyrirtækjum innan handar er varðar ráðgjöf á innihaldi skilaboða hverju sinni. |
Samráð markaðsmál og hönnun ehf
Laugarvegi 182 - í samstarfi við AP almannatengsl og Port hönnun| 105 Reykjavík
Krókeyrarnöf 10 | 600 Akureyri | Sími 461-2400
samrad@samrad.is


